Osasuna 1 - 0 Athletic Bilbao
1-0 Abde Ezzalzouli ('47 )
1-0 Abde Ezzalzouli ('47 )
Osasuna vann Athletic Bilbao, 1-0, í fyrri undanúrslitaleik spænska konungsbikarsins á El Sadar-leikvanginum í Pamplona í kvöld.
Gestirnir voru betri í fyrri hálfleiknum. Inaki Williams kom boltanum í netið á 14. mínútu en var dæmdur rangstæður og þá kom Iker Munian sér í gott skotfæri en boltinn yfir markið.
Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og komust yfir þökk sé mögnuðu einstaklingsframtaki Abde Ezzalzouli.
Athletic fékk tvö góð færi til að jafna á síðustu tuttugu mínútunum í gegn Raul Garcia og Gorka Guruzeta en báðir settu boltann framhjá markinu.
Lokatölur 1-0 fyrir Osasuna sem er nú skrefi nær því að komast í úrslitaleikinn. Liðin mætast öðru sinni á San Mamés-leikvanginum í Bilbao þann 4. apríl.
Athugasemdir