Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 02. mars 2023 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
SR dæmdur ósigur og sektað um 60 þúsund krónur
Mynd: Raggi Óla

SR lagði Úlfana á útivelli er liðin mættust í C-deild Lengjubikarsins á dögunum.


SR tefldi þó fram ólöglegum leikmanni í sigrinum og því hefur KSÍ dæmt liðinu ósigur í leiknum og sektað um 60 þúsund krónur.

Róbert Orri Ragnarsson er umræddur leikmaður. Hann var skráður í annað félag þegar leikurinn fór fram. Liðin mættust í fyrstu umferð Lengjubikarsins.

Úr reglugerð KSÍ:
10.1 Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks, skal sæta sekt að upphæð kr. 30.000 og að auki kr. 30.000 fyrir hvern leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með viðkomandi félagi og tekur þátt í leiknum. Félag, sem notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, skal sæta sektum að upphæð kr. 100.000.

11.2 Félag, sem notar leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með því eða notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, telst hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Staðfesti skrifstofa KSÍ að þátttakandi hafi verið óhlutgengur í leik skal mótanefnd þegar í stað skrá úrslit leiksins skv. ofangreindu og tilkynna það viðkomandi félögum. Heimilt er að kæra slíka skráningu til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ og skal kærufrestur telja frá þeim degi sem tilkynningin er gefin út.


Athugasemdir
banner