Theodór Ingi Óskarsson, leikmaður Fylkis, hefur framlengt samning sinn við félagið loka árs 2025.
Theodór, sem er 17 ára, þykir einn efnilegasti leikmaður félagsins en þessi öflugi sóknarmaður fór á reynslu hjá ítalska félaginu Venezia á síðasta ári. Hann hefur þá verið iðinn við markaskorun í bæði 2. og 3. flokki félagsins.
Fylkismaðurinn hefur æft reglulega með U17 ára landsliðinu síðasta hálfa árið.
Theodór framlengdi samning sinn við Fylki um helgina og gildir samningurinn til loka árs 2025.
Fylkir mun spila í Bestu deildinni í sumar eftir sannfærandi sigur í Lengjudeildinni á síðasta ári.
Athugasemdir