fim 02. mars 2023 10:30
Elvar Geir Magnússon
U21 fer til Finnlands og Ungverjalands í vináttulandsleiki
Kristian Nökkvi Hlynsson.
Kristian Nökkvi Hlynsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U21 landslið karla mætir Ungverjalandi og Finnlandi í vináttulandsleikjum áður en undankeppni EM 2025 hefst en þetta er tilkynnt á heimasíðu KSÍ.

Liðið mætir Ungverjalandi 19. júní og Finnlandi 7. september. Báðir leikirnir fara fram ytra, en leiktímar verða birtir síðar.

Ísland hefur leik í undankeppni EM 2025 þann 12. september, þegar Tékkland kemur í heimsókn.

Næsti leikur U21 liðsins verður gegn Írlandi, en liðin mætast í vináttuleik í Cork þann 26. mars.

Davíð Snorri Jónasson er þjálfari U21 landsliðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner