Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 03. mars 2023 18:03
Brynjar Ingi Erluson
Choupo-Moting hjá Bayern til 2024
Eric Maxim Choupo-Moting verður áfram í Bayern
Eric Maxim Choupo-Moting verður áfram í Bayern
Mynd: EPA
Kamerúnski framherjinn Eric Maxim Choupo-Moting verður áfram hjá Bayern München en hann skrifaði í dag undir nýjan samning sem gildir út næsta tímabil.

Choupo-Moting, sem er 33 ára gamall, er með 15 mörk í 24 leikjum á þessu tímabili með Bayern en þetta er þriðja leiktíðin sem hann spilar með þýska meistaraliðinu.

Ferill hans hefur farið upp á við síðustu ár. Hann féll með Stoke City árið 2018 en var fenginn óvænt til Paris Saint-Germain.

Kamerúnski leikmaðurinn er sagður hafa gríðarlega jákvæð áhrif í búningsklefanum og hefur það spilað stórt hlutverk.

Hann framlengdi samning sinn við Bayern í dag út næsta tímabil eða til 2024.

Choupo-Moting á 72 leiki og 20 mörk fyrir kamerúnska landsliðið og fór hann meðal annars með liðinu á HM í Katar undir lok síðasta árs.
Athugasemdir
banner
banner