Þróttur Vogum hefur náð samkomulagi við Jökul Blængsson um að hann spili áfram með liðinu næstu tvö árin.
Markmaðurinn átti gott tímabil með Þrótturum í 2. deild og var á lokahófi félagsins valinn leikmaður ársins.
Jökull var á bekknum í liði ársins í 2. deild hér á Fótbolti.net.
Markmaðurinn átti gott tímabil með Þrótturum í 2. deild og var á lokahófi félagsins valinn leikmaður ársins.
Jökull var á bekknum í liði ársins í 2. deild hér á Fótbolti.net.
Jökull er 28 ára, er uppalinn hjá Fjölni og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2015 með Fjölni.
Hann var hjá Fjölni til 2018, en þá fór hann í Hauka, lék með Vængjum Júpíters 2019, Elliða árið 2021 en lék svo ekkert á Íslandi aftur fyrr en 2024 þegar hann fór í Þrótt Vogum og var hann að klára sitt annað tímabil í Vogum. Hann spilaði fyrir nokkrum árum með liði GSU Eagles í Bandaríkjunum.
Athugasemdir