„Þetta hefur verið fín fyrstu vikurnar þó að liðinu gangi ekki alltof vel núna," sagði landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason um fyrstu vikur sínar hjá austurríska félaginu, Rapid Wien.
Hann hefur verið að glíma við veikindi og meiðsli en hann er ánægður með að fá að spreyta sig í Evrópudeildinni en félagið er í riðlakeppninni.
Hann hefur verið að glíma við veikindi og meiðsli en hann er ánægður með að fá að spreyta sig í Evrópudeildinni en félagið er í riðlakeppninni.
„Það er mjög gaman, það var stórt í þeirri ákvörðun að ég fór þangað, þeir eru mjög oft í Meistaradeild eða Evrópudeild og það er sviðið sem mig langaði að prófa."
Hann segir möguleikana á að ná í sex stig úr leikjunum tveim sé frekar góða.
„Sex stig væri frábært en þetta eru tveir erfiðir leikir og við þurfum að undirbúa okkur vel fyrir þá. Þetta er dauðafæri á að ná í sex stig," sagði Arnór Ingvi.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir





















