Víkingur Ólafsvík fékk KR í heimsókn í öðrum leik í annarri umferð Pepsi deildar karla. Bæði lið töpuðu sínum fyrsta leik í deildinni í sumar. Víkingar fyrir Val og KR-ingar fyrir Víkingum frá Reykjavík
KR skoraði sigurmarkið í leiknum í dag á 93 mínútu leiksins og var því svekkelsið í okkar manni Ejub Purisevic.
KR skoraði sigurmarkið í leiknum í dag á 93 mínútu leiksins og var því svekkelsið í okkar manni Ejub Purisevic.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 1 - 2 KR
„Þetta var bara leiðinlegt að fá svona mark á sig á síðustu sekúndu," sagði Ejub eftir leik.
KR lék í þriggja manna varnarlínu í dag og með tvo vængbakverði, Morten Beck og Arnór Svein. Ejub náði að finna góð svör við þeirri hættu í dag.
„Mér fannst okkar skipulag ganga nánast fullkomlega upp. Þeir voru meira með boltann og það var bara allt í lagi. Þeir sköpuðu sér ekki mikið af færum en mesta hættan skapaðist bara þegar þeir unnu seinni boltann. Kannksi vorum við bara ekki tilbúnir í seinni boltana."
Víkingar voru að spila mjög vel í dag miðað við að þeir væru að keppa á móti liði sem spáð er í titilbaráttuna
„Þessi leikur var bara mjög góður. Við spiluðum töluvert betur en í síðasta leik, þá sérstaklega varnarlega. Kannski skoruðum við bara alltof snemma," sagði Ejub.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir






















