Heimild: Expressen
Sænska stórveldið Rosengård er búið að staðfesta brottfarir þriggja leikmanna aðalliðsins og er Glódís Perla Viggósdóttir þar á meðal.
Glódís Perla er eftirsótt víðs vegar um Evrópu en virðist vera á leið til þýsku risanna í FC Bayern. Hinar tvær eru sænsku landsliðskonurnar Anna Anvegård og Nathalie Björn sem eru orðaðar við Everton.
Hjá Bayern yrði Glódís samherji Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur en hún tók þátt í sex leikjum á síðustu leiktíð, er stórveldið endurheimti Þýskalandsmeistaratitilinn frá Wolfsburg eftir fjögurra ára bið.
Hin 26 ára gamla Glódís er gífurlega öflug og verður afar spennandi að fylgjast með henni takast á við nýja áskorun.
Glódís á 89 keppnisleiki að baki fyrir íslenska landsliðið.
Rosengård meddelar att Anna Anvegård, Nathalie Björn och Glodis Viggosdottir lämnar klubben denna sommar. Enligt rykten ska Glodis Viggosdottir till Bayern München
— Marcus Bühlund (@marcusbuhlund) July 8, 2021
Samkvæmt heimildum gæti Glódís Perla Viggósdóttir verið á leið til Bayern Munich og verður liðsfélagi Karólínu Leu þar. Verið áhugi frá nokkrum liðum á Glódísi, en Bayern virðist vera líklegast til að landa henni. Hún færi þá til Bayern nú í sumar #fotboltinet @heimavollurinn
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) July 8, 2021
Athugasemdir