Manchester United ætlar að leggja fram nýtt og endurbætt tilboð í Bryan Mbeumo, leikmann Brentford.
Brentford hefur þegar hafnað tveimur tilboðum United í Mbeumo, en það síðasta hljóðaði upp á 60 milljónir punda.
Samkvæmt Sky Sports vill Brentford fá meira en 60 milljónir fyrir kamerúnska sóknarmanninn.
Miðillinn segir að Man Utd sé að undirbúa nýtt og endurbætt tilboð í leikmanninn og eru aðilarnir því að færast nær samkomulagi.
Einnig er talið að Thomas Frank vilji taka Mbeumo með sér til Tottenham, en það mun reynast erfitt að sannfæra leikmanninn sem hefur þegar samþykkt að ganga í raðir United.
Mbeumo er 25 ára gamall og átti stórkostlegt tímabil með Brentford, en hann skoraði 20 mörk og lagði upp 7 í deildinni. Aðeins Mohamed Salah, Alexander Isak og Erling Braut Haaland skoruðu fleiri mörk á tímabilinu.
Athugasemdir