Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 09:06
Elvar Geir Magnússon
Belfast
Ætla að sýna meiri gæði með boltann gegn Íslandi
Isaac Price
Isaac Price
Mynd: EPA
Isaac Price, leikmaður Norður-Írlands, vill að lið hans „sýni meiri gæði“ á boltanum gegn Íslandi á þriðjudagskvöldið en það gerði í 2-1 í tapinu gegn Dönum um helgina.

Annað kvöld mætast Norður-Írland og Ísland í vináttulandsleik á Windsor Park. Leikurinn hefst 18:45 að íslenskum tíma.

„Við viljum halda boltanum betur og sýna aðeins meiri gæði þegar við erum með hann. Þetta er á okkar heimavelli, við spilum oftast betur þar. Heimavöllurinn gefur aukakraft,“ segir Price, sem spilar fyrir West Bromwich Albion.

„Við sýndum mikið vinnuframlag gegn Danmörku án boltans en hefðum mátt gera betur þegar við fengum hann. Við þurfum að vinna í að verða betri í að halda honum. Það er mikilvægt núna þegar styttist í undankeppni HM þar sem við spilum meðal annars gegn Þýskalandi."
Athugasemdir
banner