Norður-Írland tekur á móti Íslandi í vináttulandsleik hér í Belfast annað kvöld. Síðast þegar Ísland lék í Belfast var 2006 í undankeppni EM.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Hermann Hreiðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu þá í 3-0 útisigri Íslands.
Blaðamaður Belfast Telegraph sagði við íslenska íþróttafréttamenn á Windsor Park í dag að sá leikur væri sér eftirminnilegur, ekki síst vegna frammistöðu Eiðs Smára sem var áberandi besti maður vallarins.
Michael O'Neill, landsliðsþjálfari Norður-Írlands, var spurður út í þennan leik fyrir níu árum á fréttamannafundi í dag.

„Ég er ánægður með að Eiður Guðjohnsen er ekki í hópnum hjá þeim núna," sagði O'Neill brosandi. „Það er ekki hægt að ganga að neinu vísu í fótbolta en við ætlum ekki að fá svona útreið á morgun."
Þá var O'Neill spurður út í breyttar áherslur og leikaðferð íslenska landsliðsins undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar og hvernig hann hyggðist reyna að finna möguleika á að sækja á íslenska liðið.
„Ég er ekki að fara að segja þér það hérna nákvæmlega hvernig við ætlum að sækja á þá. Það er erfitt fyrir nýjan þjálfara að koma strax inn í umspilsleiki og Kósovó er ekki auðveldur andstæðingur. Við Norður-Írar þekkjum það," sagði O'Neill og vitnaði í umspilsleikina sem töpuðust gegn Kósovó, fyrstu leiki Íslands undir stjórn Arnars.
„Ég þekki til þjálfarans og þekki bakgrunn hans sem leikmaður á Englandi. Margir þjálfarar vilja spila af mikilli ákefð og með pressu og margir leikmenn þekkja þetta frá sínum félagsliðum. Með landsliðum er erfiðara að framkvæma þetta því leikmenn koma úr mismunandi aðstæðum og frá mismunandi liðum."
Hann var þá spurður út í leikmenn íslenska liðsins og hverja þyrfti helst að varast.
„Við vitum að þeirra aðal sóknarmaður er meiddur (Orri Steinn Óskarsson), Albert Guðmundsson er góður leikmaður og (Andri Lucas) Guðjohnsen líka. Við gátum séð í þessum Skotaleik á föstudaginn hverju við má búast frá Íslandi. Við búumst við erfiðum leik en þetta er leikur sem við ætlum að reyna að vinna."
Athugasemdir