Nasser Al-Khelaifi forseti PSG var spurður út í kerfið sem hann notast við hjá stórveldinu þar sem félagið er með Luis Enrique sem aðalþjálfara og Luís Campos sem yfirmann fótboltamála.
Al-Khelaifi segir að mennirnir komi báðir að kaupum og sölum á leikmönnum félagsins.
„Luis Enrique hefur bannað okkur að kaupa leikmenn sem eru eldri en 28 ára. Ef þið skoðið síðustu leikmenn sem við höfum keypt þá er sá elsti 24 ára," sagði Al-Khelaifi.
„Enrique er mjög strangur þegar það kemur að aldri leikmanna, hann vill hafa ungt og metnaðarfullt lið með mikinn baráttuhug.
„Campos finnur leikmennina og segir þjálfaranum frá þeim. Þjálfarinn skoðar leikmennina síðan gaumgæfilega og svo koma þeir til okkar til að fá grænt ljós."
Athugasemdir