FC Bayern staðfesti það fyrr í dag að miðvörðurinn Jonathan Tah mun leika með liðinu á HM félagsliða í sumar.
Tah hefði komið á frjálsri sölu um næstu mánaðamót en Bayern vildi fá hann fyrr til að geta notað hann á HM.
Bayern tókst að semja við Leverkusen um að borga eina milljón evra til að fá Tah til sín nokkrum vikum fyrr.
Svipað gerðist með félagaskipti Trent Alexander-Arnold frá Liverpool til Real Madrid, nema að Madrídingar eru sagðir hafa greitt tíu sinnum hærri upphæð.
Real bauð eina milljón evra en Liverpool hafnaði því tilboði og samdi við spænska stórveldið um að fá tíu milljónir.
Athugasemdir