Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
De Jong vill semja við Barca
De Jong hefur spilað 259 leiki á sex árum í Barcelona.
De Jong hefur spilað 259 leiki á sex árum í Barcelona.
Mynd: EPA
Hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong ætlar að gera nýjan samning við Barcelona. Hann segir sjálfur frá þessu.

Það hafa ýmsir orðrómar verið uppi um De Jong í fortíðinni og nú á leikmaðurinn ekki nema eitt ár eftir af samningi sínum við Börsunga.

De Jong er 28 ára gamall og sinnir lykilhlutverki í liði Barca. Joan Laporta forseti sagði í viðtali í maí að það væri forgangsmál fyrir félagið að semja við leikmanninn.

„Ég held að ég muni skrifa undir nýjan samning, en ég get samt ekki verið 100% viss. Ef allt gengur vel þá mun það gerast," sagði De Jong við Voetbalzone.

„Þeir vilja halda mér og ég vil skrifa undir. Undir eðlilegum kringumstæðum þá mun þetta ganga upp. Ég vona að ég verði áfram hérna, mér líður vel í Barcelona."
Athugasemdir
banner