Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 16:40
Brynjar Ingi Erluson
Deilir samskiptum sínum við Postecoglou - „Stend ávallt þér við hlið“
Ange Postecoglou var látinn fara á dögunum
Ange Postecoglou var látinn fara á dögunum
Mynd: EPA
Yves Bissouma
Yves Bissouma
Mynd: EPA
Yves Bissouma, leikmaður Tottenham á Englandi, deildi skjáskoti af samskiptum sínum við ástralska stjórann Ange Postecoglou sem var látinn fara frá félaginu á dögunum.

Tottenham lét Postecoglou taka poka sinn þrátt fyrir að hafa unnið Evrópudeildina og tryggt Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð.

Postecoglou var í miklu uppáhaldi hjá leikmönnum félagsins og kom það flatt upp á þá að félagið hafi rekið hann úr starfi.

Bissouma var einn þeirra sem hélt mikið upp á Postecoglou, en hann deildi skjáskoti af einlægum samskiptum sínum við stjórann á samfélagsmiðlum í dag.

„Hæ, Biss. Fyrirgefðu en ég rétt missti af símtalinu. Ég er ótrúlega stoltur af þér og það var alger heiður að deila búningsklefa með þér og um leið þakklátur að þú hafir haft trú á því sem við vorum að reyna að afreka. Ég óska þér alls hins besta í framtíðinni og mun ávallt fylgja þér. Ástarkveðjur frá minni fjölskyldu til þinnar,“ sagði Postecoglou við Bissouma sem svaraði um hæl.

„Takk stjóri og allt sem þú gerðir fyrir mig, bæði innan sem utan vallar. Ég verð ávallt þakklátur fyrir trú þína á mér og mun ég sakna þín ótrúlega. Svona er fótboltalífið og það er margt sem mig langar til að segja, en þíu veist hvað mér finnst um þig og óska ég þér alls hins besta í framtíðinni og megi Guð vernda þig of fjölskyldu þína. Ástarkveðjur til þín,“ skrifaði BIssouma og svaraði Postecoglou: „Ég stend ávallt þér við hlið, Biss,“

Postecoglou var greinilega mjög vel liðinn í klefanum og eflaust mikill söknuður af honum.

Thomas Frank mun taka við keflinu af honum en Tottenham er í viðræðum við Brentford og er gert ráð fyrir að hann verði kynntur á næstu tveimur dögum.
Athugasemdir