

Martin Zubimendi er með munnlegt samkomulag við Arsenal, en tekst Real Madrid að gera hið ómögulega?
Liverpool gerir lokatilboð í Florian Wirtz, Arsenal er enn í viðræðum við Leipzig og Jack Grealish gæti endað hjá Everton. Allt þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Liverpool er að undirbúa lokatilboð sem nemur um 118 milljónum punda í þýska landsliðsmanninn Florian Wirtz (22), eftir að Bayer Leverkusen hafnaði 113 milljóna punda tilboði félagsins. (Mail)
Everton hefur áhuga á að fá Jack Grealish (29) frá Manchester City í sumar, en það gæti þurft að sætta sig við lánssamning þar sem Everton hefur líklega ekki ráð á því að greiða há laun kappans. (Mail)
Real Madrid ætlar að gera lokatilraun í að reyna að fá Martin Zubimendi (26) frá Real Sociedad, en hann er sagður nálægt því að ganga í raðir Arsenal. (AS)
Arsenal hefur ekki enn náð samkomulagi við RB Leipzig um slóvenska framherjann Benjamin Sesko (22), en viðræður munu halda áfram á næstu dögum. (Sky)
Danski sóknarmaðurinn Rasmus Höjlund (22) segist ekki að vera að hugsa um að yfirgefa Manchester United, þrátt fyrir að hafa verið orðaður við Inter. (Talksport)
Enski miðjumaðurinn Myles Lewis-Skelly (18) mun framlengja samning sinn við Arsenal. Real Madrid hefur sýnt því áhuga á að fá hann síðustu vikur. (Football Insider)
Borussia Dortmund hefur hafnað öðru tilboði Chelsea í Jamie Gittens (20). Annað tilboðið hljóðaði upp á 29,5 milljónir punda en Dortmund vill í kringum 42-50 milljónir fyrir hann. (Sky)
Chelsea er reiðubúið að greiða allt að 12,6 milljónir punda til að landa franska markverðinum Mike Maignan (29) frá AC Milan. (Sky)
Diego Coppola (21), varnarmaður Verona og ítalska landsliðsins er orðaður við Bournemouth og Como. (Football Insider)
Victor Osimhen (26), framherji Napoli, hefur hafnað samningstilboði Al Hilal í Sádi-Arabíu. Hann hefði þénað um 25 milljónir punda á ári í Sádi, en hann vlill heldur vera áfram í Evrópu. (Football Italia)
Jadon Sancho (25), vængmaður Manchester United, er á lista hjá Al Hilal. (Foot Mercato)
Ítalska fótboltasambandið vill ráða Claudio Ranieri í stað Luciano Spalletti í landsliðsþjálfarastarfið. (Football Italia)
Athugasemdir