Manchester City og Lyon hafa náð samkomulagi um kaup og sölu á franska landsliðsmanninum Rayan Cherki. Þetta segir David Ornstein hjá Athletic í dag.
Enska félagið greiðir Lyon tæpar 35 milljónir punda fyrir Cherki, sem lék sína fyrstu A-landsleiki á dögunum.
Cherki, sem er 21 árs gamall, náði samkomulagi við Man City um kaup og kjör á dögunum og mun hann skrifa undir fimm ára samning.
Frakkinn mun gangast undir læknisskoðun á morgun áður en hann verður kynntur hjá félaginu.
Stuðningsmenn Man City munu væntanlega fá að sjá hann spreyta sig í fyrsta sinn á HM félagsliða en fyrsti leikur liðsins er gegn marokkóska liðinu Wydad miðvikudaginn 18. júní.
Cherki kom að 32 mörkum með Lyon á síðustu leiktíð, en hann hefur spilað með aðalliðinu frá 2019.
Athugasemdir