Tottenham Hotspur er staðráðið í því að kaupa Antoine Semenyo kantmann Bournemouth í sumar.
Tottenham er þó að berjast við Manchester United um leikmanninn, en félögin eru einnig að berjast um Bryan Mbeumo kantmann Brentford.
Thomas Frank er að taka við þjálfarastarfinu hjá Tottenham og vill fá bæði Mbeumo og Semenyo til félagsins.
Brentford hafnaði 55 milljón punda tilboði frá Man Utd í Mbeumo á dögunum og er talið að Bournemouth vilji fá 75 milljónir punda til að selja Semenyo.
Bournemouth er í góðri stöðu eftir söluna á Dean Huijsen til Real Madrid. Ýmis stórveldi hafa áhuga á leikmönnum byrjunarliðsins en félagið ætlar ekki að selja lykilmennina sína ódýrt í sumar.
Semenyo er 25 ára gamall og með fjögur ár eftir af samningi sínum við Bournemouth. Mbeumo á aðeins eitt ár eftir hjá Brentford.
Semenyo er landsliðsmaður Gana á meðan Mbeumo er landsliðsmaður Kamerún.
Athugasemdir