Manchester United hefur sett sig í samband við sænsku markavélina Viktor Gyökeres. Fréttastofa Sky Sports greinir frá þessum tíðindum í dag.
Gyökeres er eftirsóttasti framherjinn á markaðnum eftir stórkostleg tvö ár hjá Sporting í Portúgal.
Svíinn kom að 67 mörkum í 52 leikjum í öllum keppnum á nýafstaðinni leiktíð en allt í allt hefur hann skorað 97 mörk í þeim 102 leikjum sem hann hefur spilað siðustu tvö ár.
Sky Sports segir að Man Utd hafi nú formlega sett sig í samband við Gyökeres og umboðsmann hans.
Ruben Amorim, stjóri Man Utd, er mikill aðdáandi Gyökeres eftir að hafa þjálfað hann hjá Sporting.
Man Utd ætlar að sækja sér framherja í sumar, hvort sem Rasmus Höjlund verður áfram eða ekki, og er Gyökeres efstur á blaði félagsins.
Arsenal hefur einnig sýnt Gyökeres áhuga en það virðist hafa fært áhuga sinn yfir á slóvenska framherjann Benjamin Sesko sem er á mála hjá RB Leipzig í Þýskalandi.
Athugasemdir