Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd staðfestir brotthvarf þriggja leikmanna - Ætla að framlengja við Heaton
Victor Lindelöf er farinn frá Man Utd
Victor Lindelöf er farinn frá Man Utd
Mynd: EPA
Manchester United hefur formlega staðfest brotthvarf þeirra Christian Eriksen, Jonny Evans og Victor Lindelöf. en allir renna út á samningi um mánaðamótin.

Hinn 33 ára gamli Eriksen kom til Man Utd frá Brentford árið 2022 og spilaði 108 leiki á tíma sínum hjá félaginu.

Hann skoraði í síðasta leik sínum í 2-0 sigrinum á Aston Villa í síðasta mánuði.

Lindelöf er þrítugur og lék með United í átta ár. Hann vann bæði enska bikarinn og deildabikarinn, eins og Eriksen, en hann lék 284 leiki með félaginu.

Evans er 39 ára gamall og var að spila fyrir United í annað sinn á löngum ferli. Hann er uppalinn hjá United og vann fjölda titla frá 2007 til 2015.

Hann söðlaði um næstu árin á eftir en sneri aftur heim árið 2023 og vann enska bikarinn ári síðar. Evans spilaði 241 leik á tíma sínum hjá United, en skórnir fara upp í hillu eftir þetta tímabil.

United greindi þá frá því að samningur Tom Heaton muni renna út um mánaðamótin, en að félagið sé í viðræðum um að framlengja samninginn.

Akademíuleikmennirnir Hubert Graczyk, Jack Kingdon, Sam Murray, Tom Myles, James Nolan og Tom Wooster fengu ekki nýjan samning.


Athugasemdir
banner