Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 09. júní 2025 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
María Catharína og stöllur steinlágu gegn Häcken
Kvenaboltinn
Mynd: Guðmundur Svansson
Linköping 0 - 5 Häcken
0-1 Anna Anvegård ('13)
0-2 Hikaru Kitagawa ('50)
0-3 Alice Bergström ('55)
0-4 Paulina Nyström ('77)
0-5 Malin Brenn ('94, sjálfsmark)

María Catharína Ólafsdóttir Grós er eini Íslendingurinn sem kom við sögu í evrópska fótboltanum í dag þegar hún var í byrjunarliði Linköping gegn BK Häcken í efstu deild sænska boltans.

María Catharína byrjaði úti á vinstri kanti hjá Linköping og fékk að spila fyrstu 86 mínúturnar í stóru tapi gegn ógnarsterku liði Häcken.

Anna Anvegård skoraði eina markið í fyrri hálfleik en Häcken skipti svo um gír eftir leikhlé. Hikaru Kitagawa, Alice Bergström og Paulina Nyström bættu við mörkum áður en Malin Brenn gerði sjálfsmark svo lokatölur urðu 0-5.

Afar sannfærandi sigur hjá Häcken sem er í öðru sæti sænsku deildarinnar, einu stigi á eftir toppliði Hammarby.

Linköping er í næstneðsta sæti, með 5 stig eftir 10 umferðir.
Athugasemdir
banner