Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo verður áfram hjá Al-Nassr
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo hefur staðfest áform sín um að vera áfram hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu þrátt fyrir ýmis önnur tilboð.

Ronaldo mun því ekki fara með á HM félagsliða í sumar en hann sagði sjálfur í viðtali á dögunum að það sé ómögulegt fyrir sig að taka þátt í öllum keppnum verandi kominn á svo háan aldur.

Ronaldo er 40 ára gamall en er þrátt fyrir það enn í fullu fjöri. Hann var í byrjunarliði portúgalska landsliðsins og skoraði mark í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar í gærkvöldi, þar sem Portúgalir sigruðu Spánverja eftir vítaspyrnukeppni.

„Það er ekkert að fara að breytast hjá mér. Ég verð áfram hjá Al-Nassr," sagði Ronaldo meðal annars í gærkvöldi.
Athugasemdir
banner