Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Van Dijk hefur engan áhuga á að klára ferilinn í Hollandi - „Verið mjög skýr með það“
Virgil van Dijk
Virgil van Dijk
Mynd: EPA
Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool og hollenska landsliðsins, segist ekki hafa áhuga á því að klára ferilinn í Hollandi.

Varnarmaðurinn stóri og stæðilegi verður 34 ára í næsta mánuði og er farið að styttast í annan enda ferilsins.

Hann fór í gegnum akademíuna hjá Willem II og spilaði síðar með aðalliði Groningen áður en hann hélt út fyrir landsteinana og samdi við Celtic í Skotlandi.

Hollendingurinn hefur spilað með Liverpool síðustu sjö ár og unnið allt sem hægt er að vinna.

Van Dijk æfði með hollenska landsliðinu í Groningen, á fyrrum heimavelli kappans, og var hann því spurður hvort hann hefði áhuga á því að klára ferilinn í Hollandi, en svar hans kom blaðamönnum heldur betur á óvart.

„Nei, því miður ekki. Ég mun ekki snúa aftur til Hollands og hef verið mjög skýr varðandi það. Ég hóf feril minn hér og það var mér mjög mikilvægt, en ég vil ekki snúa aftur í hollensku deildina. Ég er mjög stoltur af því sem ég hef afrekað á ferlinum og tel ég það ekki vera möguleika að klára ferilinn í Hollandi,“ sagði Van Dijk.

Van Dijk skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Liverpool undir lok tímabils og því ljóst að hann mun spila með liðinu til 36 ára aldurs.
Athugasemdir
banner
banner