Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 17:40
Ívan Guðjón Baldursson
Yamal sá eini sem klappaði ekki: „Á eftir að vinna Þjóðadeildina oft"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Lamine Yamal var á sínum stað í byrjunarliði Spánverja sem spiluðu við nágranna sína frá Portúgal í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar í gærkvöldi.

Yamal átti frábærar rispur í fyrri hálfleik og kom að fyrra marki Spánverja í 2-2 jafntefli. Yamal var skipt af velli á 106. mínútu og tók ungstirnið því ekki þátt í vítaspyrnukeppninni, sem Spánverjar töpuðu.

Yamal var ósáttur að leikslokum og var eini leikmaður Spánverja sem klappaði ekki fyrir sigri Portúgala. Spánverjar horfðu á Portúgali fagna titlinum á vellinum og klöppuðu fyrir nágrönnum sínum, en Yamal var fúll og gekk af velli í miðjum fagnaðarlátunum.

Cristiano Ronaldo hrósaði Yamal í hástert fyrir upphafsflautið og var spurður aftur út í hann eftir leikslok.

„Hann á eftir að vinna helling af einstaklings- og liðsverðlaunum. Hann er bara 17 ára gamall og getur bætt sig gríðarlega mikið," sagði Ronaldo.

„Hann er undrabarn og ég vona að fjölmiðlar láti hann í friði eftir þennan úrslitaleik. Hann á mjög langan feril framundan og mun vinna Þjóðadeildina oft í framtíðinni."

Hinn bráðefnilegi Yamal verður 18 ára gamall um miðjan júlí.

Lamine Yamal, unlike all of Spain's NT, refuses to clap for Portugal's win and exits the pitch
byu/NepentheZnumber1fan insoccer

Athugasemdir
banner