Liverpool mun ekki selja Chiesa - Völdu Onana fram yfir Ortega - Arsenal líklegasti áfangastaður Stiller - Real Madrid horfir til Bayern
   þri 09. september 2025 12:53
Kári Snorrason
Þrjú spor saumuð á Haaland sem fékk rútuhurð norska landsliðsins framan í sig
Haaland birti mynd af sér eftir slysið á Snapchat.
Haaland birti mynd af sér eftir slysið á Snapchat.
Mynd: Snapchat, Haaland
Erling Haaland þurfti að láta sauma þrjú spor í vörina eftir að hurð á liðs­rútu Noregs skall framan í hann í gær.

Haaland greindi frá óhappinu á samfélagsmiðlinum Snapchat og gerði lítið úr atvikinu. Þá sagði hann meðal annars í gríni að Martin Ødegaard, liðsfélagi hans í Noregi og leikmaður Arsenal, bæri ábyrgð á slysinu.

Ødegaard sagði á blaðamannafundi Noregs í gær að hann hafi ekki séð atvikið, en heyrði að Haaland hafi fengið hurð í andlitið.

Haaland skoraði eina mark Noregs er liðið mætti Finnlandi í vináttuleik á fimmtudaginn. Noregur er með fullt hús stiga í riðli sínum í undankeppni HM eftir fjóra leiki og mætir Moldavíu í kvöld.



Athugasemdir
banner
banner