Jón Daði Böðvarsson var að sjálfsögðu mjög kátur með 2-0 sigurinn á Tyrkjum á Laugardalsvelli í kvöld.
Sigurinn var gríðarlega öruggur en íslenska liðið spilaði mjög vel.
Sigurinn var gríðarlega öruggur en íslenska liðið spilaði mjög vel.
Lestu um leikinn: Ísland 2 - 0 Tyrkland
„Við erum himinlifandi og ótrúlega ánægðir með þægilegan og öruggan sigur."
„Við settum virkilega mikla pressu á þá, sérstaklega í fyrri hálfleik, skoruðum tvö mörk og hefðum getað skorað fleiri og þar á meðal ég."
Jón Daði var ánægður með samvinnu sína og Alfreðs Finnbogasonar í dag.
„Alfreð kom rosalega vel inn í þetta, hann er markaskorari eins og við öll vitum og hann hleypur vel fyrir liðið. Þú getur ekki beðið um meira en það. Hann er búinn að vera virkilega góður í þessum leikjum."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir























