Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 11. mars 2023 11:20
Aksentije Milisic
Silva og Osimhen aðal skotmörk PSG
Osimhen.
Osimhen.
Mynd: Getty Images

Franska liðið PSG mun reyna að fá Bernardo Silva, leikmann Manchester City, og Victor Osimhen, sóknarmann Napoli, til liðsins næsta sumar.


Samningur Silva hjá Man City rennur út árið 2025 en leikmaðurinn er talinn vilja fara frá félaginu. Portúgalinn var mjög nálægt því að ganga í raðir Barcelona síðasta sumar en hann skrifaði kveðju til stuðningsmanna Man City á Instagram en ekkert varð úr skiptunum að lokum.

Þá ætla frönsku risarnir að sannfæra Osimhen um að fara ekki í ensku úrvalsdeildina en Nígeríumaðurinn sagði á dögunum að það væri draumur sinn að spila á Englandi. PSG ætlar að reyna sannfæra þennan mikla markaskorara að koma til Frakklands.

PSG féll úr leik í Meistaradeild Evrópu í vikunni og því enn ein vonbrigðin fyrir liðið í keppninni. Þrátt fyrir að fá Lionel Messi, Gianluigi Donnarumma, Sergio Ramos, Lionel Messi, Achraf Hakimi og fleiri öfluga til liðsins þá er frammistaða þeirra í Meistaradeild Evrópu mikil vonbrigði, enn eitt árið.

Christophe Galtier er sagður fá að klára leiktíðina sem þjálfari liðsins en PSG er einnig dottið úr franska bikarnum. Þá er Brasilíumaðurinn Neymar frá út tímabilið vegna meiðsla á ökkla.


Athugasemdir
banner
banner
banner