Brasilíski framherjinn Gabriel Jesus er í leikmannahópi Arsenal sem mætir Fulham á Craven Cottage klukkan 14:00 en hann er búinn að ná sér af meiðslum sem hann varð fyrir undir lok síðasta árs.
Jesus var gríðarlega mikilvægur í liði Arsenal áður en hann meiddist illa en toppliðið hefur náð að leysa það vandamál ágætlega.
Þetta ætti þó að reynast mikil styrking fyrir Arsenal sem er í harðri baráttu um titilinn.
Fulham: Leno, Ream(c), Robinson, Adarabioyo, Tete, De Cordova-Reid, Lukic, Solomon, Andreas Pereira, Reed, Mitrovic.
Arsenal: Ramsdale, Gabriel Magalhães, White, Zinchenko, Saliba, Xhaka, Ødegaard(c), Partey, Martinelli Silva, Trossard, Saka.
Erik ten Hag, stjóri Man Utd, gerir tvær breytingar frá 4-1 sigrinum á Real Betis. Jadon Sancho kemur inn fyrir Fred og þá er Aaron Wan-Bissaka í bakverðinum í stað Diogo Dalot.
Man Utd: de Gea, Varane, Martínez, Wan-Bissaka, Shaw, Bruno Fernandes(c), Casemiro, Weghorst, Antony, Sancho, Rashford.
Southampton: Bazunu, Bella-Kotchap, Walker-Peters, Perraud, Bednarek, Walcott, Sulemana, Ward-Prowse(c), Alcaraz, Lavia, Adams.
David Moyes gerir tvær breytingar á liði West Ham sem mætir Aston Villa. Kurt Zouma og Thilo Kehrer koma inn í liðið fyrir Ben Johnson og Angelo Ogbonna. Unai Emery gerir eina breytingu á liði Villa en Leon Bailey kemur inn fyrir meiddan Boubacar Kamara.
West Ham: Aréola, Aguerd, Emerson, Kehrer, Zouma, Lucas Paquetá, Bowen, Soucek, Rice(c), Benrahma, Ings
Aston Villa: Martínez, Konsa, Álex Moreno, Mings, Cash, Douglas Luiz, Ramsey, McGinn(c), Buendía, Bailey, Watkins.
Athugasemdir