sun 12. mars 2023 12:45
Brynjar Ingi Erluson
Mane vill að Bayern kaupi Cancelo í sumar
Mynd: Getty Images
Senegalski sóknarmaðurinn Sadio Mane segist vonast til þess að Bayern München kaupi Joao Cancelo frá Manchester City í sumar.

Cancelo er á láni hjá Bayern frá Man City út þessa leiktíð en þýska félagið á möguleika á að kaupa hann fyrir um 60 milljónir punda.

Portúgalski bakvörðurinn var einn besti leikmaður Man City áður en Pep Guardiola, stjóri félagsins, leyfði honum að fara undir lok janúargluggans.

Mane er hæstánægður með að Bayern hafi fengið Cancelo og vonast
hann til þess að hann verði með liðinu á næstu leiktíð.

„Þvílíkur leikmaður. Við sáum það í gær að Joao er einn besti leikmaður heims. Hann er svo góður og við erum rosalega ánægðir að hann sé að spila með okkur. Ég væri til að hafa hann hjá okkur á næsta tímabili, því þetta er akkúrat leikmaður sem við þurfum,“ sagði Mane við Sport1.
Athugasemdir
banner
banner
banner