Leandro Trossard hefur komið sterkur inn í lið Arsenal eftir að hafa gengið til liðs við félagið frá Brighton í janúar. Hann var með þrjár stoðsendingar í sigri Arsenal gegn Fulham í dag.
Hann er því kominn með fimm stoðsendingar og eitt mark í níu leikjum í úrvalsdeildinni.
Martin Ödegaard fyrirliði Arsenal er gríðarlega ánægður með nýjasta liðsfélagann.
„Hann hefur komið með magnaða hluti í liðið, ég elska að spila með honum. Hann er alltaf á réttum stað, hann finnur alltaf réttu sendinguna eins og í dag og í hinum leikjunum. Ég er mjög ánægður að hann sé í liðinu," sagði Ödegaard.
Athugasemdir