Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fim 16. febrúar 2023 23:07
Brynjar Ingi Erluson
Brjálaðist eftir að Xavi tók hann af velli - „Biðst afsökunar á þessu"
Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Raphinha var ekki nógu sáttur er Xavi ákvað að taka hann af velli í 2-2 jafnteflinu gegn Manchester United á Nou Camp.

Raphinha átti fínan leik gegn United en hann lagði upp fyrsta mark liðsins og skoraði síðan síðara markið er fyrirgjöf hans fór í gegnum vörnina og í fjærhornið.

Nokkrum mínútum síðar ákvað Xavi að taka hann af velli og setja Ferran Torres inná en Raphinha var ekki hrifinn af því og lýsti vonbrigðum sínum er hann gekk af velli.

Brasilíumaðurinn tók sér sæti á bekknum og byrjaði að kýla sætið fyrir framan sig en þar sat Marcos Alonso.

Raphinha kom í viðtal eftir leik og baðst afsökunar á hegðun sinni.

„Ég talaði við Xavi eftir leik. Ég vil nýta tæifærið og biðja alla afsökunar, þjálfarann, Ferran, liðið og stuðningsmennina, en stundum langar manni bara að hjálpa liðinu það mikið að maður getur ekki stjórnað sér,“ sagði Raphinha.


Athugasemdir
banner
banner