„Frábær tilfinning, loksins heimasigur hjá okkur og þrjú mikilvæg stig í baráttunni í deildinni." Sagði Andri Hjörvar Albertsson þjálfari Þór/KA eftir gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur á Tindastóli í Pepsi Max Deild kvenna í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 0 Tindastóll
Andri var ánægður með liðsheildina í kvöld.
„Vinnusemi, dugnaður og liðsheild. Við vorum að gera hlutina saman og vorum samtaka í þeim aðgerðum sem við vorum að leggja upp með og ég held að það hafi skapað þetta í dag."
Þrátt fyrir að hafa bara skorað eitt mark í dag þá var sóknarleikurinn hættulegur.
„Við vorum hættulegar enda vildum við vera það, við vildum pressa hátt og þvinga þær í löngu boltana og sækja hratt á þær en að sama skapi vera þolinmóðar á boltann þegar þær sitja. Framlínan okkar sem og allar skiluðu frábæru dagsverki í dag."
Það er hörð barátta á botni deildarinnar og voru þessi þrjú stig gríðarlega mikilvæg fyrir Þór/KA.
„Þessir þrír punktar eru alveg ótrúlega mikilvægir, það er stutt á mili liðanna í dag og þetta er bara frábært að geta farið með þetta veganesti í þessa þrjá leiki sem eftir eru."























