Florian Wirtz, leikmaður Liverpool á Englandi, hefur fengið sinn skerf af gagnrýni fyrir byrjunina með Englandsmeisturunum, en hann sýndi gæði í sín í mikilvægum leik Þjóðverja gegn Slóvakíu í kvöld.
Wirtz var keyptur til Liverpool fyrir metfé í sumar áður en Liverpool bætti metið með kaupum á Alexander Isak.
Þjóðverjinn hefur átt marga góða leiki, en aðeins lagt upp eitt mark þó þau gætu hafa verið fleiri ef færanýting liðsfélaga hans væri upp á tíu.
Í kvöld lagði hann upp tvö mörk í 6-0 stórsigri á Slóvakí í úrslitaleik um sæti á HM.
Báðar stoðsendingarnar voru í hæsta gæðaflokki á Leroy Sane sem kláraði frábærlega, en mörkin má sjá hér fyrir neðan.
Sjáðu fyrri stoðsendingu Wirtz
Sjáðu seinni stoðsendinguna hér
Athugasemdir



