Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 18. febrúar 2023 15:00
Aksentije Milisic
Arnautovic lenti saman við þjálfarann á æfingu
Mynd: EPA

Marko Arnautovic, sóknarmaður Bologna á Ítalíu, lenti saman við þjálfara liðsins, Thiago Motta, á æfingu á miðvikudeginum síðasta.


Þessu greinir Gazzetta dello Sport en Motta var sagður vera ósáttur með hugarfar leikmannsins sem tók illa í ummæli þjálfarans sem endaði með rifrildum þeirra á milli. Þeir náðu þó sáttum að lokum.

Arnautovic er í banni í dag þegar Bologna mætir Sampdoria í Serie A deildinni en hann er með fimm gul spjöld á bakinu.

Motta talaði við fjölmiðla og þar sagðist hann ekki vera viss hvort að Arnautovic myndi byrja inn á í leiknum gegn Inter Milan í næstu viku.

„Hann er í banni gegn Sampdoria þannig að hann fær lengri tíma til að komast í betra stand. Hann verður vonandi klár í slaginn gegn Inter,” sagði Motta.

„Þegar hann verður klár, þá ákveð ég hvort hann byrjar eða ekki.”

Arnautovic hefur átt gott tímabil en hann hefur skorað átta mörk til þessa.


Athugasemdir
banner
banner
banner