Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. febrúar 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísak John og Jón Gunnar áfram hjá Víði
Mynd: Víðir Garði/Facebook

Ísak John Ævarsson og Jón Gunnar Sæmundsson hafa skrifað undir nýja samninga við Víði.


Ísak sem er fæddur árið 2000 er uppalinn hjá Njarðvík en tók sín fyrstu skref í meistaraflokki með Víði árið 2019 og hefur leikið 61 leik og skorað 9 mörk síðan.

Jón Gunnar er leikjahæsti leikmaður liðsins í dag með 147 leiki og 8 mörk. Hann er fæddur árið 1993 og á leiki með Víði og Keflavík í yngri flokkum en lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Víði árið 2012.

„Það er mikið ánægjuefni að halda þessum miklu Víðismönnum innan okkar raða." Segir í tilkynningu frá félaginu.


Athugasemdir
banner