Jökull Andrésson gekk til liðs við Stevenage á láni frá Reading en hann var fjórði markvörðuinn sem liðið nældi í á þessari leiktíð.
Nú hefur liðið þurft að ná í fimmta markvörðinn þar sem Jökull varð fyrir því óláni að handarbrotna í leik liðsins gegn Newport á dögunum.
Atvikið gerðist í fyrri hálfleik en hann kláraði hálfleikinn. Hann fór í myndatöku eftir leikinn þar sem meiðslin komu í ljós.
Stevenage hefur því náð í markvörð frá Accrington á láni en liðið var með markvörð frá Fulham á láni sem meiddist og annar sem yfirgaf félagið í von um betri spiltíma.
Þess vegna voru Jökull og einn annar fengnir til félagsins.
Athugasemdir