Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 18. febrúar 2023 15:40
Aksentije Milisic
Marcelo riftir samningi sínum við Olympiacos
Mynd: EPA

Brasilíumaðurinn Marcelo og Olympiacos hafa náð samkomulagi um að rifta samningi leikmannsins en hann hefur einungis spilað 10 leiki fyrir gríska félagið.


Marcelo, sem er 34 ára, gekk í raðir Olympiacos á frjálsri sölu frá Real Madrid en hann var leikmaður Madrid í fimmtán ár.

Hann skoraði þrjú mörk í tíu leikjum í Grikklandi en nú er hann frjáls ferða sinna samkvæmt heimildum frá Fabrizio Romano.

Spurning hvað næsta skref hjá þessum vinstri bakverði verður en hann á að baki 58 landsleiki fyrir Brasilíu á sínum flotta ferli.


Athugasemdir
banner
banner
banner