Owen Hargreaves fyrrum leikmaður Manchester United vill að ungstirnið Alejandro Garnacho byrji gegn Barcelona í síðari leik liðanna á Old Trafford í Evrópudeildinni.
Liðin mættust á Camp Nou í vikunni þar sem leiknum lauk með 2-2 jafntefli en Garnacho byrjaði á bekknum og kom inn á síðustu 10 mínúturnar.
„Mér fannst Barcelona ekki hafa stjórn á leiknum en það er aðal atriðið fyrir Xavi og Barcelona. Þeir voru of opnir og það verður meira um það á Old Trafford ef þeir ætla spila svona. Kannski mun Garnacho spila, ég held að hann verði fullkominn fyrir það," sagði Hargreaves hjá BT Sport eftir leikinn.
Liðin mætast á Old Trafford þann 23. febrúar en sigurvegarinn fer í 16 liða úrslitin.
Athugasemdir