Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 18. febrúar 2023 10:40
Aksentije Milisic
Sjáðu frábært einstaklingsframtak hjá sjóðheitum Kvaratskhelia
Mynd: Getty Images

Napoli vann 2-0 útisigur á Sassuolo í gærkvöldi og er liðið því komið með hvorki meira né minna en átján stiga forystu á toppi deildarinnar.


Khvicha Kvaratskhelia kom Napoli yfir eftir tæplega stundarfjórðung en hann fékk þá knöttinn á miðjum velli og brunaði áfram.

Hann lék á nokkra leikmenn Sassuolo áður en hann skoraði með hnitmiðuðu skoti í nærhornið.

Kappinn er nú kominn með 10 mörk og 9 stoðsendingar í 19 leikjum en þetta var þriðja markið hans í þremur síðustu leikjum með liðinu.

Hann er mjög eftirsóttur af stórliðum um alla Evrópu en ekki er talið líklegt að Napoli leyfi bæði honum og Victor Osimhen að fara í sumar.

Osimhen skoraði einnig í gær en þessir tveir leikmenn hafa verið að valta yfir ítölsku deildina á þessari leiktíð. Áhugavert verður að sjá lið Napoli í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Sjáðu markið snyrtilega hérna.


Athugasemdir
banner
banner