Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 21. maí 2022 15:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild kvenna: FH snéri dæminu við í seinni hálfleik
Maggý tryggði FHingum stigin þrjú
Maggý tryggði FHingum stigin þrjú
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fjarðab/Höttur/Leiknir 1-2 FH
1-0 Linli Tu ('23 )
1-1 Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('46 )
1-2 Maggý Lárentsínusdóttir ('60 )


Fjarðabyggð/Höttur/Huginn fékk FH í heimsókn í loka leik þriðju umferðar Lengjudeildar kvenna í dag.

Leikurinn fór fram í Fjarðabyggðarhöllinni en bæði lið höfðu unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni fyrir leikinn.

Heimakonur voru marki yfir í hálfleik en Linli Tu skoraði það þegar fyrri hálfleikur var um það bil hálfnaður.

FH konur komu sterkar inn í síðari hálfleikinn og jöfnuðu metin strax á fyrstu mínútu. Það gerði Elín Björg Símonardóttir. Eftir klukkutíma leik skoraði Maggý Lárentsínusdóttir fyrir FH og tryggði liðinu stigin þrjú.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner