Franski sóknarmaðurinn Randal Kolo Muani er heldur betur að njóta sín í þýsku deildinni en hann lagði í gær upp tíunda mark sitt í deildinni.
Kolo Muani lagði upp fyrsta mark Eintracht Frankfurt í 3-0 sigrinum á Schalke í gær.
Það var tíunda stoðsending hans á tímabilinu í fimmtánda leik hans fyrir félagið.
Kolo Muani kom til Frankfurt frá Nantes síðasta sumar og hefur síðan þá skorað fimm og lagt upp tíu.
Enginn leikmaður í sögu deildarinnar hefur verið jafn fljótur að leggja upp tíu mörk.
Frakkinn átti góða innkomu með franska landsliðinu á HM í Katar undir lok síðasta árs og gæti yfirgefið Frankfurt strax í sumar eftir góða byrjun í Þýskalandi.
Athugasemdir