Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. febrúar 2023 08:05
Elvar Geir Magnússon
„Eins og moskítófluga í kringum De Jong“
Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Fred jafnaði fyrir Manchester United gegn Barcelona í gær. Landi hans Antony skoraði svo sigurmarkið og United fór áfram í 16-liða úrslitin með 2-1 sigri.

Erik ten Hag sagði eftir leik að þetta hefði verið magnað kvöld gegn besta liði spænsku deildarinnar. Meðal þeirra sem fengu hrós var Fred.

„Fred gegndi mikilvægu hlutverki. Hann þurfti að stöðva Frenkie de Jong með því að spila eins og moskítófluga í kringum hann. Hann gerði gríðarlega vel í fyrri leiknum líka og nú skoraði hann mark. Það var algjör snilld," sagði Ten Hag.

„Það sem hann gerir vel er að taka hlaupin bakvið vörnina á hárréttum augnablikum. Tímasetningarnar hjá honum eru mjög góðar og það gekk mjög vel upp hjá honum í kvöld."

Klukkan 11 verður dregið í 16-liða úrslitin og þá kemur í ljós hvaða lið verður mótherji United.

Sjá einnig:
Dregið í 16-liða úrslit í dag
Athugasemdir
banner
banner
banner