Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fös 28. maí 2021 21:54
Anton Freyr Jónsson
Nonni: Endanum var bara kastaður peningur upp á
Lengjudeildin
Jón Þórir Sveinsson, þjálfari Framara.
Jón Þórir Sveinsson, þjálfari Framara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir og Fram mættust í hávaða roki á Extravellinum í Grafarvogi fyrr í kvöld og var Albert Hafsteinsson var hetja Framara en hann skoraði eina mark leiksins.

„Frábært að koma hingað og ná í þrjú stig og það var markmið dagsins." voru fyrstu Jón Þóris Sveinssonar þjálfara Fram.

Lestu um leikinn: Fjölnir 0 -  1 Fram

„Vindurinn og veðrið var í aðalhlutverki. Menn reyndu en það voru ekki margir spilkaflar í leiknum hjá hvorugu liðinu. Það spilaði mikla rullu í dag. Þetta snérist um karakter og vera tilbúin að vinna og berjast."

Jón Þórir var spurður út í aðdraganda leiksins en talaði Pétur Guðmundsson dómari leiksins eitthvað við Framara hvort liðið vildi spila leikinn eða fresta en Kórdrengjum - Þrótti Reykjavík var frestað en hann átti að fara fram á sama tíma.

„Pétur velti því upp, hann mætti hérna fyrir leik. Ég náði reyndar ekki að vera komin en hann og Ási (þjálfari Fjölnis) kíktu aðeins á aðstæður, þeim fannst þetta 50/50 og endanum var bara kastaður peningur upp á hvort yrði spilað eða ekki. Ég held að hann hefði annars getað bara kastað upp á úrslitin því það var ekki spilaður mikill spilaður í dag, því miður."

Framarar hafa byrjað mótið frábærlega en liðið er með fullt hús á toppi deildarinnar.

„Það er ekki hægt að biðja um meira, við erum bara mættir til leiks og ætlum bara að halda áfram. Frábær sigur í dag, njótum þess í dag og síðan er bara leikur næstu helgi."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner