Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
   mið 29. júní 2016 16:11
Arnar Daði Arnarsson
Arnar Grétars: Verðum að spila tvo toppleiki
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Breiðablik mætir lettneska liðinu, Jelgava í fyrstu umferð undankeppni Evrópukeppninnar á Kópavogsvelli annað kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Arnar Grétarsson segir að allir séu spenntir fyrir leiknum í herbúðum Blika. Hann telur að Breiðablik eigi góða möguleika gegn lettneska liðinu.

„Þetta er kærkomið tækifæri fyrir strákana að fara á nýjan vettvang og við viljum reyna standa okkur þar eins og landsliðið hefur verið að gera í undanförnum leikjum."

Arnar Grétarsson segir erfitt að meta möguleikana en hann hefur þó séð eitthvað til liðsins á myndbandsupptökum.

„Ég hef séð þrjá leiki með þeim og það er erfitt að átta sig almennilega á styrkleika deildarinnar í Lettlandi. Ég tel að ef við spilum tvo góða leiki þá eru líkurnar séu góðar á að fara í næstu umferð. Við verðum að átta okkur á því að í fyrra þá slóu þeir út lið frá Búlgaríu og detta síðan naumlega út gegn liði frá Makedóníu. Þetta eru klárlega andstæðingar sem við megum ekki vanmeta," sagði Arnar og bætti við:

„Við verðum að spila tvo toppleiki þá eigum við mjög góða möguleika að fara áfram."

„Ég hef fengið í gegnum félaga minn sem þekkir vel til í Lettlandi smá upplýsingar um liðið. Síðan hef ég og Kristó (aðstoðarþjálfari Blika) séð leiki með liðinu og rétt aðeins málin. Við höfum reynt að kortleggja veikleika og styrkleika þeirra. Það er alltaf þannig þegar maður fer í Evrópukeppni, þá fer maður maður blint inn í það. Þrátt fyrir að hafa séð nokkra leiki. Það er alltaf öðruvísi. Það er gott að hafa séð þessa þrjá leiki og átta sig aðeins á andstæðingunum," sagði þjálfari Blika, Arnar Grétarsson.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner