Willum Þór var eðlilega svekktur eftir 1-0 tap sinna manna gegn Stjörnunni í dag. Þetta var síðasti leikur Willums sem þjálfari KR.
„Maður vill alltaf sigra og sérstaklega á heimavelli. Mér fannst þetta kaflaskiptur leikur þar sem Stjarnan voru mun betri í fyrri hálfleik en við tókum svo yfirhöndina í seinni hálfleik en því miður náðum við ekki að jafna leikinn."
Eftir úrslit dagsins var það ljóst að KR endaði í fjórða sæti þetta sumarið og spila ekki í Evrópukeppni næsta tímabil.
„Auðvitað er ekki ásættanlegt að enda í fjórða sæti. Við stefndum að Evrópusæti eftir að Valur var búið að stinga af og vorum inní þeirri baráttu allt til loka."

Lestu um leikinn: KR 0 - 1 Stjarnan
Eins og áður sagði var þetta síðasti leikur Willums sem þjálfari KR en hann er á leiðinni í framboð.
„Framtíðin er mjög björt hjá KR og vonandi náum við að halda sama hóp og móta hópinn fyrir framtíðina." sagði Willum að lokum.
Athugasemdir