Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   mán 31. janúar 2011 12:41
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Torres fór af æfingasvæði Liverpool í þyrlu
Fernando Torres, framherji Liverpool, yfirgaf æfingasvæði Liverpool nú í hádeginu í þyrlu samkvæmt fréttum Sky.

Ekki er vitað hvert þyrlan er á leiðinni en ekki er ólíklegt að hún fari til London enda hefur Torres verið sterklega orðaður við Chelsea undanfarna daga.

Liverpool hafnaði 35 milljóna punda tilboði í Torres fyrir helgi en talið er að félögin hafi núna náð samkomulagi um kaupverð.

Torres, sem er 26 ára, kom til Liverpool frá Atletico Madrid árið 2007 og hefur síðan þá skorað 65 mörk í 102 deildarleikjum.
Slapp
banner
banner