Arsenal samþykkir tilboð í Trossard - Real Madrid á eftir Mainoo
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
banner
   mán 04. júlí 2011 13:48
Elvar Geir Magnússon
Heimir Hallgríms: Höfum harma að hefna gegn Þór
„Við höfum harma að hefna gegn Þór og það er gott að fá þennan leik svona strax eftir þann leik. Okkur fannst sem við ættum meira skilið úr honum," segir Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV.

ÍBV mætir Þór á Akureyri í undanúrslitum Valitor-bikarsins en dregið var í hádeginu í dag. Eyjamenn töpuðu þegar þessi lið mættust í deildinni á dögunum.

Það er stíf dagskrá hjá Eyjaliðinu um þessar mundir en liðið heldur á morgun til Írlands þar sem það mætir írska liðinu Saint Patrick's í seinni viðureign liðanna.

„Það er mikilvægt að missa ekki einbeitinguna á það sem er framundan," segir Heimir en ÍBV vann Fjölni í bikarnum í gær með marki nokkrum mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma. „Það var mjög gott að hafa sloppið við að fara í framlengingu."

Heimir býst við erfiðum leik á Írlandi. „Það verður mikil pressa á okkur þarna. Þetta verður erfiður leikur, bardagaleikur."

Í sjónvarpinu hér að ofan má sjá viðtalið við Heimi í heild sinni en það var tekið á æfingu ÍBV á Valbjarnarvelli áðan.
Slapp
banner