Ómar Jóhannsson var maður leiksins í góðum sigri Keflavíkur gegn Fram. Hann bjargaði liðinu oft á tíðum með góðum markvörslum.
Já þetta var langþráður deildarsigur, það voru komnir fjórir tapleikir og það var alveg ljóst fyrir þennan leik að annað hvort vinna þennan leik eða sogast enn dýpra inní botnbaráttuna þannig að við erum ánægðir.
Fyrir leikinn hafði Keflvíkingar tapað fjórum leikjum í röð en Ómar vildi ekki meina að það hafi verið komin nein örvænting í liðið.
Neinei örvænting er dáltið sterkt orð og það var ekki komið, en fjórir tapleikir í röð setjast dáltið á sálina en það var þá bara back to basic, berjast og nú er bara hver leikur stríð, þessi leikur var stríð, við unnum þetta það var erfitt, Framarar eru með gott lið, þeir eru neðstir en þeir eru ekki lélegir.
Nánar er rætt við Ómar í sjónvarpinu hér að ofan.





















