,,Þetta voru frábær mörk frá Gaua og þau hefðu getað verið fleiri. Við sigldum þessu heim og áreynslan var ekki mikil í síðari hálfleik," sagði Grétar Sigfinnur Sigurðarson varnarmaður KR eftir 3-0 sigur á Fylki í kvöld.
Mikið leikjálag er hjá KR-ingum þessa dagana en þeir eru í baráttunni á þremur vígstöðum.
,,Við þurfum að vera á tánum alls staðar. Við ætlum að reyna að gera betur í Evrópukeppninni og bikarnum og halda okkar skriði í deildinni og það er margt sem við getum hlakkað til."
Grétar stóð sjálfur í ströngu um helgina en í gær fór hann í box við Kolbein Kárason framherja Vals. Kolbeinn er Íslandsmeistari í boxi en Grétar þurfti að berjast við hann sem hluti af áskorun á Fótbolta.net.
,,Ég hélt að þetta myndi vera aðeins minna og ég lét lemja mig í klessu. Þetta verður eitthvað vandræðalegt. Ég fékk smá glóðarauga og nokkra áverka en það er bara gaman að taka á nýjum hlutum," sagði Grétar léttur í bragði.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















